Umhverfis- og öryggisstefna Kjarnastarfsemi Nesskipa er eignarhald á flutningaskipum, umboðsþjónusta fyrir skip og skipamiðlun. Fyrirtækið lítur á það sem skyldu sína og hluta af daglegri starfsemi að tryggja öryggi starfsmanna sinna og annarra sem með eða á vegum fyrirtækisins starfa, hvort heldur er til sjós eða lands. Nesskip ber takmarkalausa virðingu fyrir umhverfi því sem fyrirtækið og starfsmenn þess starfa innan, hvort heldur er um að ræða náttúru eða lífríki. Höfuðmarkmið fyrirtækisins í umhverfismálum er að fyrirtækið og starfsemi þess skaði ekki umhverfið. Til að ná fram og uppfylla stefnu og markmið fyrirtækisins í umhverfis- og öryggismálum hefur Nesskip eftirfarandi að leiðarljósi:
Nesskip fer í hvívetna eftir þeim lögum og reglugerðum sem gerðar eru á Íslandi og í öðrum löndum til umhverfis- og öryggismála og hvetur alla til að gera slíkt hið sama.
Garðar Jóhannsson, framkvæmdastjóri
|


