Stórflutningar Stórflutningar eða flutningur heilfarma er megin starfsemi Nesskipa. Flutningaskip fyrirtækisins eru hluti af flota norska flutningafyrirtækisins Wilson Euro Carriers í Bergen. Floti Wilson telur rúmlega eitthundrað skip og er burðargeta þeirra frá 2.000 - 9.000 tonn. Þessi samvinna Nesskipa og Wilson veitir fyrirtækinu aðgang, hvenær sem þörf er á, að stórum flota skipa af mismunandi stærð og gerð. Þetta fyrirkomulag eykur til muna sveigjanleika, hraða og gæði þeirrar þjónustu sem Nesskip veitir viðskiptamönnum sínum.
|



