Umboðsþjónusta Nesskip er leiðandi aðili í umboðsþjónustu við erlend skip sem hafa viðkomu á Íslandi, s.s. flutninga-, tank-, skemmtiferða-, rannsókna- og fiskiskip. Umboðsþjónustan býður upp á þjónustu allan sólarhringinn um allt land. Liðsheildin samanstendur af einstaklingum sem allir hafa að baki áralanga reynslu á þessu sviði ásamt því að vera menntaðir skipstjórnarmenn. Umboðsþjónusta Nesskipa annast einnig tækni- og viðgerðarþjónustu, áhafnaskipti, olíusölu, losun úrgangsolíu, tollafgreiðslu varahluta og útvegun vista hvar og hvenær sem þörf krefur.
|



